Konur sem búa við ofbeldi eða hafa búið við ofbeldi geta komið og fengið ráðgjöf, stuðning og upplýsingar án þess að til dvalar komi. Til að koma í viðtal þarf að bóka tíma á vefsíðu athvarfsins https://www.kvennaathvarf.is/boka-vidtal/  eða í síma 561-1205.

Viðtölin eru ókeypis.

Viðtal er alfarið á forsendum konunnar, það tekur oftast um klukkustund og fer oftast fram í athvarfinu. Það er þó einnig hægt að óska eftir símaviðtali ef kona býr t.d. út á landi eða kemst ekki af öðrum ástæðum í athvarfið. Þegar kona kemur í athvarfið í viðtal þá sest ráðgjafi niður í viðtalsherbergi með konu og tekur stutta sögu um ástand mála. Það fer algjörlega eftir aðstæðum hver næstu skref verða. Til dæmis getur konan óskað eftir öðru viðtali, verið vísað í aðra þjónustu eða boðin dvöl í Kvennaathvarfinu.

Konur koma í viðtöl af ýmsum ástæðum. Stundum koma þær til þess að fá hagnýtar upplýsingar í tengslum við að fara frá ofbeldismanninum, hvernig maður sækir um skilnað, forræðismál, húsnæðismál o.s.frv. Þolendur ofbeldis í nánum samböndum verða oft ónæmir fyrir ástandinu, hafa vanist orðræðu og hegðun gerenda og eru ekki alltaf vissir hvort um heimilisofbeldi sé að ræða. Það getur verið óþægilegt að ræða erfitt heimilisástand við nákomna, og þess vegna koma konur stundum í viðtal til ráðgjafa Kvennaathvarfsins til að ræða aðstæður sínar.

Aðstandendur geta einnig nýtt sér þessa þjónustu til þess að fá ráðgjöf og stuðning.