Frá Samtökum um kvennaathvarf; helstu tölur frá árinu 2019

Árið 2019 dvöldu 144 konur og 100 börn í Kvennaathvarfinu. Konur dvöldu í athvarfinu frá einum degi uppí 236 daga, að meðaltali í 30 daga. Börn dvöldu í athvarfinu í frá einum degi upp í 155 daga, að meðaltali í 39 daga. Að meðaltali dvöldu 23 íbúar í athvarfinu á dag, 12 konur og 11 börn.

Að auki komu 294 konur í samtals 545 viðtöl án þess að til dvalar kæmi. Samtals komu því 438 konur í athvarfið í viðtöl eða dvöl á árinu. Til viðbótar hittu ráðgjafar athvarfsins 214 einstaklinga í viðtölum í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.

Í heildina voru 67% kvenna sem komu í Kvennaathvarfið á árinu íslenskar (74% þeirra sem komu í viðtöl og 51% dvalarkvenna),  74% kvennanna eru af höfuðborgarsvæðinu. Konurnar voru á aldrinum 18-81 árs en börnin frá nokkurra daga gömlum upp í 16 ára.

Flestar konur nefna fleiri en eina ástæðu komu.

 Ástæða komu Hlutfall
 Andlegt ofbeldi 93%
 Líkamlegt ofbeldi 60%
 Fjárhagslegt ofbeldi 48%
 Kynferðislegt ofbeldi 37%
 Ofbeldi gegn börnum 35%
 Morðhótanir 26%
 Kyrkingatak 25%
 Stafrænt ofbeldi 20%
 Eltihrellir 16%

 

Aldrei hafa fleiri konur nefnt ofbeldi gegn börnum sem ástæðu komu í athvarfið. Fram kemur í svörum kvennanna að alls búa 349 börn undir 18 ára að aldri á ofbeldisheimilunum sem þær koma af. Einungis 27% barnanna höfðu fengið einhverja aðstoð vegna þess ofbeldis sem barnið bjó við á heimili sínu en 44% kvennanna sögðu að barnavernd hefði verið tilkynnt um ofbeldið.

Alls voru 12% kvennanna með líkamlega áverka við fyrstu komu í athvarfið (23% dvalarkvenna og 6% kvenna í viðtölum) en rúmlega helmingur (53%) sögðu frá því að hafa einhvern tíma hlotið líkamlega áverka í sambandinu. 54% sögðust hafa óttast um líf sitt í sambandinu, 42% sögðu lögreglu hafa komið á vettvang ofbeldisins í eitt eða fleiri skipti, 15% kært ofbeldið til lögreglu, meirihluti (60%) þeirra mála var enn í vinnslu en dómur hafði fallið í 5% málanna, 16% kærðra mála hafði verið verið felld niður,  5% höfðu fengið nálgunarbann og 5% neyðarhnapp.

Hér má sjá upplýsingar um það hvert konurnar fóru að lokinni dvöl í athvarfinu.

Afdrif dvalarkvenna  Hlutfall
Ættingjar / vinir 17%
Heim til ofbeldismannsins 15%
Nýtt húsnæði 13%
Heim, ofbeldismaðurinn ekki þar 12%
Úr landi 8%
Sjúkrastofnun 3%
Annað 8%
Ekki vitað / í athvarfi yfir áramót 23%

 

Gerendurnir voru að 95% karlmenn, 72% eru af íslenskum uppruna og voru þeir á aldrinum 18-83ja ára.

Hér má sjá tengsl þeirra við konurnar.

Tengsl við geranda Hlutfall
Eiginmaður 26%
Sambýlismaður 13%
Kærasti 6%
Fyrrverandi eiginmaður 13%
Fyrrverandi sambýlismaður 15%
Fyrrverandi kærasti 11%
Annar 15%

 

Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra athvarfsins
sigthrudur@kvennaathvarf.is eða í síma 869 7225

Schedule appointment

Drífa Jónasdóttir

Vestibulum ante ipsum

Vestibulum ac diam sit amet quam vehicula elementum sed sit amet dui. Donec rutrum congue leo eget malesuada vestibulum.