Í tilefni hins árlega 16 daga átaks gegn kynbundnum ofbeldi gáfu Soroptimistar á Akranesi Kvennaathvarfinu 500.000 krónur til byggingar áfangaheimilis athvarfsins.
Ása Helgadóttir, formaður og Sigríður Kr. Gísladóttir, varaformaður Soroptimista á Akranesi afhentu styrkinn og tók Eygló Harðardóttir, verkefnisstýra áfangaheimilisins á móti honum fyrir hönd Kvennaathvarfsins. Anna G. Torfadóttir, formaður fjáröflunarnefndar klúbbsins tók myndirnar.
Þökkum við kærlega fallegan hug Soroptimistasystra á Akranesi til Kvennaathvarfsins.
Saman byggjum við von um betra líf.