Kvennaathvarfið vill vekja athygli á ráðstefnu sem haldin verður á fimmtudaginn næstkomandi (18. október) á hótel Reykjavík.
Ráðstefnan hefst kl 10.00 og stendur til kl 16.00.
Ráðstefnan er ætluð fagfólki sem vinnur með ofbeldi í nánum samböndum og almenningi sem vill láta sig málefnið varða.
Hægt verður að kaupa hádegisverð á staðnum fyrir 2.900 kr.
Gott aðgengi er að salnum og aðgangur er ókeypis.
Ráðstefnunni verður streymt. Hægt verður að nálgast hlekk á streymi á Facebook viðburðarsíðunni: https://www.facebook.com/