Úr Kvennaathvarfinu koma bestu óskir um gleðilegar hátíðir og hjartans þakkir fyrir ómetanlegan hlýhug í garð athvarfsins og íbúa þess á árinu sem er að líða.
Það virðist ætla að verða margt um manninn hjá okkur yfir hátíðarnar en það er alltaf pláss fyrir fleiri og athvarfið er sem fyrr opið allan sólarhringinn, allt árið um kring.
Hægt að hafa samband í síma 561 1205 fyrir athvarfið í Reykjavík og 561 1206 fyrir athvarfið á Akureyri.