Okkur barst þessi ósk frá Huldu Ragnheiði sem langar að nota tækifærið og safna fjármunum fyrir athvarfið í Reykjavík og á Akureyri í tilefni fimmtugsafmælisins. Við þökkum Huldu að sjálfsögðu kærlega fyrir þetta frábæra framtak.
Fimmtugasta árið í lífi mínu er hafið!
Mig langar svo til að láta gott af mér leiða, og þess vegna dugar mér ekki einn afmælisdagur, heldur ætla ég að eiga heilt 50 ára AFMÆLISÁR!
Ég yrði ótrúlega þakklát fyrir að þið mynduð hjálpa mér til að vera þessi litla þúfa sem getur lyft þungu hlassi. Mig skortir ekkert, ég bý við andlegar og veraldlegar lúxusaðstæður og því langar mig að láta gott af mér leiða í stað þess að taka við veraldlegum afmælisgjöfum. Ég vil biðja alla vini mína að verja frekar fjármunum til stuðnings Kvennaathvarfinu í tilefni af 50 ára afmælinu mínu 24. september 2021. Það yrði mín stærsta afmælisgjöf fram til þessa ef við náum að safna góðri upphæð til að styðja við Kvennaathvarfið sem nú rekur athvarf bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Enginn á að þurfa að búa við ofbeldi á heimili sínu, hvorki andlegt né líkamlegt. Það er löngu þekkt hversu mikilvægt er að leiða konur út úr ofbeldisaðstæðum og hjálpa þeim að verða nægilega sterkar til að standa á eigin fótum. Kvennaathvarf er lykilatriði þegar kemur að því að styðja við konur til að komast úr aðstæðum sem þær ráða annars ekki við.
Hægt er að leggja inn frjáls framlög á reikning Samtaka um kvennaathvarf Reikningsnúmer: 101-26-43227 Kennitala: 410782-0229
Vinsamlegast skráðu „Afmæli“ í skýringu við greiðsluna. Starfsmenn kvennaathvarfsins munu halda utan um þær innborganir þannig að ég geti sagt ykkur eftir afmælið mitt hvað við höfum í sameiningu náð að safna hárri fjárhæð fyrir þetta málefni.